152. löggjafarþing — 29. fundur,  31. jan. 2022.

blóðgjöf.

226. mál
[17:21]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegur. forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir fyrirspurnina. Það er mikilvægt að vekja athygli á þessu máli sem er búið að taka allt of langan tíma og snýst svolítið um að eyða rótgrónum fordómum. Ég fagna mjög því svari heilbrigðisráðherra að þetta muni verða að raunveruleika, að það sé búið að áhættumeta og greina. Ég fagna því að þetta verði loks að veruleika, vonandi sem fyrst á þessu ári.