störf þingsins.
Herra forseti. Í uppfærðri þingmálaskrá ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í gær, kom í ljós að nokkur mál verða að fá að bíða að sinni. Ríkisstjórnin var með metnaðarfull markmið sem er vel, en ekki er raunhæft að allt náist með góðu móti þegar fram líða stundir og ábyrgðarhluti að mæta því eins og komið hefur verið inn á hér í dag. Eitt af þeim málum sem því miður mun ekki ná fram að ganga á þessu þingi er frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta. Ég syrgi að það mál hafi ekki náð fram að ganga nú. Það mál er í grunninn heilbrigðismál frekar en nokkuð annað, heilbrigðismál sem myndi skipta fjölda einstaklinga miklu, og er nauðsynlegt mál. Málið kom ekki til þingsins nú og því eru ekki forsendur til að ræða það efnislega hér og nú.
Ég hef enga ástæðu til að rengja hæstv. heilbrigðisráðherra þegar hann segir að ekki standi til að svæfa málið heldur hafi hann ákveðið að vinna útfærslu á frumvarpinu betur og hafi sett á fót starfshóp í því skyni. Reynslu frá öðrum ríkjum, sem hefur borið góða raun, ætti að nota til fordæmis og því er jákvætt að starfshópurinn muni vinna með The Global Commission on Drug Policy og hafa aðgengi að sérfræðingum sem vinna svipaða vinnu í öðrum löndum og vera þá í því alþjóðlega samstarfi sem hefur gefist vel en miða við íslenskan raunveruleika.
Forseti. Ég vil nota tækifærið og segja að ég vona innilega að starfshópur þessi, ráðuneytið og hæstv. ráðherra muni nota tímann vel fram að næsta þingi til að ná utan um þetta mikilvæga mál svo að vel sé.