almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Það hefur verið mikill heiður að fá að starfa í þessum sal í þágu þess að gera samfélagið okkar betra fyrir íslenska þjóð. Verkefnin hafa verið mörg og ólík og hefði ég kosið að fleiri mál hefði komist í gegn á þessu þingi, en vinna þessa vetrar mun skila sér áfram á næsta þingi.
Öll þau mál sem rædd hafa verið hér eru mikilvæg en þó standa nokkur upp úr. Staðan í orkumálum þjóðarinnar hefur verið mér sérstaklega hugleikin. Svo virðist sem að á síðustu árum hafi fólk, bæði hér inni og í samfélaginu, forðast að ræða orkumál og hefur það leitt til ákveðinnar stöðnunar. Útlit er fyrir að sú stöðnun hafi loksins verið rofin. Í stjórnarsáttmálanum kemur fram það markmið að Ísland nái kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040 með fullum orkuskiptum og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Hér er um að ræða göfugt markmið og það er okkar hér á Alþingi að standa vaktina. En svo hægt sé að ná þeim markmiðum er mikilvægt að horfa á heildarmyndina. Við þurfum fjölbreyttar lausnir í orkumálum. Nýjar virkjanir, aflaukning virkjana sem þegar eru til staðar, styrking á flutningskerfi raforku og dreifikerfum og áhersla á bætta orkunýtni og orkusparnað eru allt liðir í því að búa okkur undir framtíðina. Til að mæta orkuþörf er mikilvægt að gefa út ný virkjunarleyfi. Dæmin hafa sannað að vernd og nýting geta haldist í hendur og þangað stefnum við. Á sama tíma og lönd í kringum okkur leita logandi ljósi að nýjum, umhverfisvænum orkukostum höfum við aðgang að innlendri, grænni orku. Við erum rík af náttúruauðlindum og getum nýtt þær með skynsamlegum hætti og í sátt við náttúruna. Það er óumflýjanlegt að nýta þurfi tækifæri til grænnar orkuframleiðslu í auknum mæli. Þar getum við náð sátt með tilliti til náttúruverndar, menningarsögulegra minja, hagkvæmni og sjálfbærni. Þá er beislun vindorku loksins komin á dagskrá fyrir alvöru, en svo hægt sé að nýta vindorkuna þarf öflugra flutningskerfi og vatnsafl sem spilar með. Stefnt er að því að reisa tvo vindorkulundi í landi í eigu Landsvirkjunar. Hér er ríkið að stíga mikilvæg skref. Vindorka er bæði hagkvæm og endurnýjanleg og sem slík einn af betri kostum til framtíðar orkuvinnslu. Í dag státar engin önnur þjóð af jafn háu hlutfalli grænnar orku af heildarorkunotkun og við Íslendingar. Af því getum við verið stolt.
Hæstv. innviðaráðherra lagði fram á þessu þingi frumvarp um breytingu á skipulagslögum sem liðkar fyrir framkvæmdum vegna flutningskerfis raforku. Það er gríðarlega brýnt að flutningskerfi raforku sé byggt upp til að þjóna markmiðum raforkulaga um öryggi, skilvirkni og hagkvæmni. Þetta frumvarp þjónar framtíðinni enda er öflugt flutningskerfi forsenda orkuskipta og árangurs í loftslagsmálum. Styrking flutningskerfis raforku þolir enga bið en á hverju ári tapast í kringum 10 milljarðar kr. vegna núverandi flutningskerfis. Hér eru atvinnutækifæri og tækifæri til uppbyggingar til staðar.
Í upphafi þings vofði heimsfaraldur enn yfir en við vorum farin að sjá til lands með von um að heimurinn tæki við sér eftir langa vetur. Strax í kjölfar faraldursins barst okkur önnur áskorun; innrás Rússa í Úkraínu, sem mun snerta okkur öll og afleiðingarnar hafa teygt anga sína hingað. Úkraína er stærsti kornframleiðandi í Evrópu, en korn er undirstaða dýrafóðurs. Skortur á fóðri hér á landi getur valdið framleiðslustöðvun í eggja-, alifugla- og svínarækt og dregur úr framleiðslu í nautgriparækt, mjólkuriðnaði og að einhverju marki í sauðfjárrækt. Einnig standa bændur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum eftir miklar verðhækkanir á aðföngum vegna stríðsins. Staðan er grafalvarleg. Ef ekki verður brugðist við með einhverjum hætti kann framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri og þar með ógna fæðuöryggi landsins.
Mikilvægi fæðuöryggis og íslensks landbúnaðar hefur lengi verið í brennidepli hjá okkur í Framsókn. Standa verður vörð um landbúnaðinn og leita varanlegra lausna á vanda bænda til framtíðar. Norðmenn hafa brugðist við m.a. með því að auka greiðslur til bænda sem bæta fyrir óvenjulegar kostnaðarhækkanir á þessu ári. Hæstv. matvælaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að vinna hratt og örugglega að tillögum til að bregðast við síhækkandi verðlagi á aðföngum til bænda. Ég treysti á að starfshópurinn komi með góðar og raunhæfar tillögur.
Þingflokkur Framsóknar hefur rætt þá tillögu að bændur fái undanþágu á virðisaukaskatti á innleggi sem kemur sem útskattur á framleiðanda til tveggja ára. Þannig má tryggja allt annan rekstrargrundvöll fyrir bændur þar sem neytendur finna ekki fyrir verðhækkunum. Framsókn hefur einnig beitt sér fyrir að afurðastöðvum í kjötiðnaði verði heimilað frekara samstarf. Með því er hægt að ná fram mun meiri hagræðingu innan afurðageirans en nú er.
Virðulegi forseti. Áskoranir liggja víðar. Á síðustu árum hefur verið gríðarlegt álag á heilbrigðiskerfið og verkefnabunkinn er stór. Heilbrigðiskerfið væri ekkert ef ekki væri fyrir allan þann mannauð sem við búum yfir. Mönnun starfa í heilbrigðisgeiranum er viðverandi áskorun hér heima sem og erlendis. Covid-faraldurinn reyndi mikið á framlínufólkið okkar í heilbrigðiskerfinu sem lagði á sig ómælda vinnu. Með þeirri samstöðu og ósérhlífni náðist að halda heilbrigðiskerfinu okkar gangandi. Þar léku þrautseigja og útsjónarsemi lykilhlutverk í óeigingjarnri vinnu framlínufólksins okkar. Við getum seint þakkað þeim nægilega en ég vil nýta tækifærið hér og segja við þau: Takk.
Það getur verið freistandi að leggja mat á heiminn út frá eigin forsendum en þegar unnið er á stórum málum verðum við að geta borið þann þroska að skilja aðstæður annarra og leita sameiginlegra leiða. Ég veit að við hér á Alþingi getum lagst saman á árarnar þvert á flokkslínur til þess að vinna að bættu heilbrigðiskerfi. Með samvinnu og samtali að leiðarstefi getum við komist í gegnum hvaða brimskafl sem er. Við byggjum á góðum grunni en það þarf kraft og þor til að halda áfram. Íslenska þjóðin er í eðli sínu jákvæð, úrræðagóð og stendur saman. Það höfum við margsannað.
— Kæru landsmenn. Ég hlakka til áframhaldandi samvinnu. Sumarið tekur nú á móti okkur opnum örmum og ég vil óska öllum gleðilegs sumars og vona að allir njóti íslenska sumarsins. Við eigum það skilið.