153. löggjafarþing — 1. fundur,  13. sept. 2022.

kosning 5. varaforseta í stað Björns Levís Gunnarssonar, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa.

[15:34]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Mér hefur borist ein tilnefning, um 10. þm. Reykv. n., Andrés Inga Jónsson. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Andrés Inga Jónsson rétt kjörinn sem 5. varaforseta Alþingis.

Ég óska honum til hamingju með kosninguna og allra heilla í starfi og færi hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni þakkir fyrir samstarf á vettvangi forsætisnefndar.