Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

greiðslureikningar.

166. mál
[18:11]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Í Bandaríkjunum er enn verið að skrifa tékka eða ávísanir, ef hæstv. ráðherra saknar þess að skrifa þær. En mig langaði líka að nefna að greiðslureikningar eru mjög algengir í Afríku. Allt frá því um 2007 hafa þeir nota símana til að greiða og millifæra peningana, nokkuð sem við lærðum bara á síðustu árum. Því er gaman að segja frá því að þarna eru þróunarlöndin mörgum árum á undan því sem kallaði sig þróaðasta land heims, Bandaríkjunum.