135. löggjafarþing — 23. fundur,  13. nóv. 2007.

almenn hegningarlög.

184. mál
[15:36]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga er varða upptöku eigna, hryðjuverk, mansal og peningaþvætti. Þar er um að ræða endurskoðun umræddra ákvæða vegna alþjóðlegra skuldbindinga, annars vegar vegna fullgildingar samninga um alþjóðlega brotastarfsemi og hins vegar vegna tilmæla frá alþjóðlegum nefndum sem Ísland á aðild að.

Helstu efnisákvæði frumvarpsins eru í fyrsta lagi þau að lagt er til að lögfestur verði nýr kafli um upptöku eigna, sbr. 2. gr. frumvarpsins. Um er að ræða heildstæðar breytingar sem taka að verulegu leyti mið af gildandi ákvæðum í dönsku og norsku hegningarlögunum. Lagt er til að lögfest verði ákvæði, sbr. c-lið 2. gr. frumvarpsins, sem gerir ráð fyrir því að unnt verði að gera upptæk verðmæti án þess að sýnt sé fram á að þau megi rekja til tiltekins refsiverðs brots hafi viðkomandi gerst sekur um brot sem er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning og geti brotið varðað að minnsta kosti 6 ára fangelsi. Að þessum skilyrðum uppfylltum megi gera upptæk verðmæti sem tilheyra viðkomandi nema hann sýni fram á að þeirra hafi verið aflað með lögmætum hætti. Við þessar aðstæður og að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum megi jafnframt gera upptæk verðmæti sem tilheyra maka eða sambúðarmaka viðkomandi og verðmæti sem runnið hafa til lögaðila sem viðkomandi hefur einn eða með sínum nánustu ráðandi stöðu í sé ekki sýnt fram á að þeirra hafi verið aflað með lögmætum hætti. Er því gert ráð fyrir fráviki frá meginreglunni um sönnunarbyrði ákæruvaldsins við þessar aðstæður.

Sem dæmi um tilvik sem falla undir þessa grein er þegar maður hefur gerst uppvís að meiri háttar fíkniefnainnflutningi. Við rannsókn málsins verður lögregla þess áskynja að brotamaður á verulegar eignir. Í slíkum tilvikum gæti brotamaður þurft að sýna fram á að eignirnar hafi ekki verið fengnar með ólögmætum ágóða. Mikilvægt er að árétta að endanlegt mat á þessu er í höndum dómstóla og ættu því hagsmunir sakbornings að vera nægilega tryggðir. Í IV. kafla frumvarpsins, og í sérstökum athugasemdum við c-lið 2. gr., er fjallað ítarlega um þessa tillögu.

Í öðru lagi er lagt til að gerðar verði ákveðnar breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga um hryðjuverk, sbr. 3.–5. gr. frumvarpsins. Verknaðarlýsing hryðjuverka í 1. mgr. 100. gr. almennra hegningarlaga er gerð skýrari og jafnframt gert ljóst að hvers konar fjármögnun hryðjuverka eða annað liðsinni við slíka brotastarfsemi telst refsiverð. Þá er lögfest sérstakt ákvæði sem bannar opinbera hvatningu til hryðjuverka.

Þá er í þriðja lagi lagt til að lögfest verði nýtt ákvæði um skipulagða brotastarfsemi, sbr. 6. gr. frumvarpsins. Í V. kafla greinargerðarinnar með frumvarpinu er ítarlega fjallað um þær réttarpólitísku röksemdir sem liggja til grundvallar þessari tillögu og því nánar lýst í sérstökum athugasemdum við greinina.

Í fjórða lagi er lagt til að gerðar verði ýmsar breytingar á 227. gr. almennra hegningarlaga um mansal, sbr. 7. gr. frumvarpsins. Skilgreining á mansalsbroti er gerð skýrari og í samræmi við Evrópuráðssamning um aðgerðir gegn mansali og bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um fjölþjóðlega skipulagða brotastarfsemi, svokallaða Palermo-bókun, bætist við ný málsgrein sem lýsir refsinæmi athafna sem tengjast ferða- og persónuskilríkjum.

Loks er í fimmta lagi lagt til að gerðar verði verulegar breytingar á 264. gr. almennra hegningarlaga um peningaþvætti, sbr. 8. gr. frumvarpsins. Er m.a. lagt til að almenn verknaðarlýsing peningaþvættis verði gerð skýrari og gildissvið hennar rýmkað. Þá er refsihámark fyrir peningaþvættisbrot hækkað úr fjórum árum í sex. Það skal tekið fram að ekki er hróflað við reglu 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga þar sem kveðið er á um að refsing geti orðið allt að 12 árum ef um ræðir ávinning af fikniefnabroti.

Frumvarp þetta er samið af refsiréttarnefnd og í samvinnu við dóms- og kirkjumálaráðuneytið. Ég vil þakka refsiréttarnefnd fyrir það starf sem liggur að baki frumvarpinu. Eins og þingmenn munu kynna sér, og hafa væntanlega kynnt sér, er þetta vandað frumvarp, vel unnið og vel rökstutt. Ég tel að allsherjarnefnd hafi góðar forsendur til að leggja mat á efni þess og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjarnefndar og 2. umr.