fjáraukalög 2011.
Frú forseti. Hér greiðum við atkvæði um að hæstv. fjármálaráðherra megi gera samning um fjármögnun framkvæmda við Vaðlaheiðargöng og ef illa fer, sem ég tel yfirgnæfandi líkur á, lendir tapið á ríkissjóði af því að hann ætlar að ábyrgjast þetta og fjármagna. Ef vel gengur brosa þeir í kampinn fyrir norðan, sem ég reikna reyndar ekki með að gerist.
Með sömu rökum og ég áðan sagði nei segi ég aftur nei. Ég tel að forsendur fyrir þessari framkvæmd, eins og ég hef skoðað þær, séu margar ekki í lagi. Ég mundi vilja að þetta yrði skoðað miklu betur áður en þetta yrði framkvæmt. Mér finnst að ef ríkið ætlar að byggja jarðgöng eigi það að gera það sjálft.