140. löggjafarþing — 121. fundur,  14. júní 2012.

heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.

718. mál
[18:17]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Það sem sagt hefur verið um kosti þess að gera göng í gegnum Vaðlaheiði er allt satt og rétt, en aðferðinni sem notuð hefur verið til að vinna að því máli og lagasetningunni sem hér er undir er ekki hægt að gefa neitt annað nafn en dellumakerí. Þess vegna segi ég nei.