greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Virðulegi forseti. Þrátt fyrir að miklir fjármunir hafi verið lagðir í Fjármálaeftirlitið á kjörtímabilinu, framlagið hefur nánar tiltekið þrefaldast og er núna um það bil helmingurinn af fjármálaeftirlitinu í Danmörku þrátt fyrir að bankakerfið hér sé bara um 8% af bankakerfi Danmerkur, hefur okkur því miður mistekist fullkomlega að byggja hér upp neytendavernd á fjármálamarkaði. Það er eitt af dæmunum um þau tækifæri sem glutrað hefur verið niður á kjörtímabilinu.
Skýrar lagaheimildir eru fyrir því að Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með slitastjórnum. Það hlýtur að vera verkefni þingsins og hv. nefndar að fá úr því skorið hjá hæstv. ráðherra af hverju því hefur ekki verið sinnt, en það á að sinna því (Forseti hringir.) með svipuðum hætti og fjármálafyrirtækjum almennt.