141. löggjafarþing — 98. fundur,  11. mars 2013.

hlutafélög.

661. mál
[22:14]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Magnús Orri Schram) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum. Það tekur á EES-reglum og efnahags- og viðskiptanefnd þingsins flytur þá breytingu við 86. gr. laganna að við bætist ný málsgrein svohljóðandi: Í félögum þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði skal kröfu, samkvæmt 1. mgr., fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til félagsstjórnar eigi síðar en viku fyrir boðun aðalfundar samkvæmt fresti í 1. eða 2. mgr. 88. gr. a. Kröfu má gera síðar en þó í síðasta lagi tíu dögum fyrir aðalfundinn. Félagsstjórn skal að minnsta kosti þremur dögum fyrir fundinn upplýsa hluthafa með öruggum hætti um kröfuna og eftir atvikum tillöguna, svo og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins, t.d. á vef félagsins.

Í 2. gr. þessa frumvarps segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Hér flytur efnahags- og viðskiptanefnd frumvarp sem snertir EES-reglu. Hún flytur það frumvarp sameiginlega og stendur öll nefndin á bak við þessa breytingu.