145. löggjafarþing — 123. fundur,  1. júní 2016.

störf þingsins.

[15:12]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég ætla að ræða mál sem ég hef reyndar talað um áður. Undanfarin ár hefur mikil umræða átt sér stað um það mikla álag sem hefur verið á starfsfólki Landspítala og einnig um bágan húsakost stofnunarinnar. Brugðist hefur verið við og nú er unnið að áætlunum um hvernig halda skuli þessum endurbótum áfram. Í störfum mínum í þinginu hef ég einnig rætt þessa hluti og bent á hvort ekki mætti nýta þær öflugu heilbrigðisstofnanir sem eru í nágrenni höfuðborgarinnar til þess að minnka álag á Landspítala. Í því samhengi hef ég bent á kosti þess að nýta Heilbrigðisstofnun Vesturlands til þessara verkefna. Þar er svigrúm til að nýta skurðstofur og auð deild sem hægt væri að nýta. Jafnframt hef ég bent á að þar eru öflug læknateymi og stoðdeildir til staðar sem gætu með auknum fjárveitingum tekið við auknum verkefnum. Ég hef m.a. lagt fram tillögu um að Alþingi álykti að fela heilbrigðisráðherra að skipa starfshóp sem kanni hvernig hægt sé að efla starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og auka fjárveitingar til hennar með það að markmiði að standa vörð um starfsemina og minnka álag á Landspítala. Í tillögunni er að auki lagt til að gera Heilbrigðisstofnun Vesturlands að varasjúkrahúsi fyrir Landspítalann. Ég hef jafnframt lagt fram fyrirspurnir um sama efni.

Á dögum var MBA-rannsókn skilað sem lokaverkefni við Háskólann í Reykjavík. Í þeirri rannsókn kemur fram að hægt væri að stytta biðlista vegna liðskiptaaðgerða úr 15 mánuðum í 3 með því að nýta skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Talið er að stofnunin sé heppilegur kostur vegna nálægðar við höfuðborgina og þar eru einnig stoðdeildir til staðar. Samkvæmt rannsókninni er til mikils að vinna. Öll bið reynist sjúklingum erfið og biðlistar kosta samfélagið tugi milljóna á viku. Kostnaður við að koma svona verkefni á væri í kringum 25 milljónir. Þessi rannsókn er í samræmi við það sem ég hef reynt að benda á. Það er ábyrgðarfullt ef þetta verkefni verður kannað nánar og gripið til aðgerða.


Efnisorð er vísa í ræðuna