148. löggjafarþing — 19. fundur,  31. jan. 2018.

um fundarstjórn.

[15:38]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Virðulegi forseti. Ég hef um nokkurt skeið farið falast eftir því að eiga hér sérstaka umræðu við hæstv. samgönguráðherra um frelsi á leigubílamarkaði. Mér bárust þær fréttir að hann vildi hvorki taka þá umræðu við mig í dag né á morgun, hann væri tilbúinn í umræðuna þegar skýrsla sem hann á von á um málið væri komin fram, sem ku vera væntanleg á næstunni.

Skýrslan er örugglega hið fínasta plagg og ég get alveg hugsað mér að lesa hana. Það breytir því ekki að ég hafði haft hug á að fá hér umræðu á pólítískum vettvangi um pólitíska stefnu ríkisstjórnarinnar um valfrelsi neytenda á íslenskum leigubílamarkaði. Það getur vel verið að þessi viðbrögð hæstv. ráðherra séu vísbending um að þar gangi ríkisstjórnarflokkarnir ekki í takt. En hvað sem því veldur vona ég að hæstv. forseti sé mér sammála um að þessi viðbrögð hæstvirtra ráðherra séu ekki til eftirbreytni og að þeir fari ekki að temja sér að beita fyrir sig óskiluðum skýrslum eða öðrum gögnum þegar þingmenn óska eftir því að fá að eiga orðastað við þá á þingi samkvæmt þingsköpum.