148. löggjafarþing — 33. fundur,  5. mars 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa tvö bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 246, um öryggi sjúklinga á geðsviði Landspítalans, frá Guðmundi Sævari Sævarssyni, og á þskj. 263, um kostnað við heilbrigðisþjónustu fyrir erlenda ferðamenn, frá Birgi Þórarinssyni.

Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 237, um innflutning á hráum og ógerilsneyddum matvælum, frá Bjarna Jónssyni.