148. löggjafarþing — 78. fundur,  12. júní 2018.

um fundarstjórn.

[22:35]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Mig langar að koma hér upp til þess að lýsa vonbrigðum mínum með að við höfum ekki fengið meiri tíma en raun ber vitni til þess að fara yfir þetta mikilvæga mál, persónuverndarreglugerðina, áður en kom til atkvæðagreiðslu. Mér skildist að við myndum fá smárými til þess og ég stólaði á að við myndum hafa tíma utan þingfundar til þess að fara yfir þetta mikilvæga mál. Ég vildi hreinlega koma hér upp til að lýsa vonbrigðum mínum með það.