149. löggjafarþing — 23. fundur, 23. okt. 2018.
skógar og skógrækt.
231. mál
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Því er nú til að svara í sem stystu máli að almennt er talið að heimildir til stjórnvaldssekta séu svona styttri leið að því að ná fram tilganginum, ná því fram að takast á við brot frekar en að það komi til lögreglurannsóknar og dómsmáls. Það er kannski stutta svarið við þessu.