149. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2018.

skipan Geirs H. Haarde í sendiherrastöðu.

[15:34]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég hef eina spurningu til að byrja með og hún er svona: Átti hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson fund, samtal eða samskipti af einhverju tagi, formleg eða óformleg, með hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni þar sem skipan Geirs H. Haardes sem sendiherra í Bandaríkjunum var rædd?