149. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:33]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Borist hefur bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 456, um kostnað vegna banns við innflutningi á fersku kjöti, frá Jóni Steindóri Valdimarssyni, og á þskj. 438 og 439, um fjölda starfsmanna sem vinna við gerð lagafrumvarpa, frá Karli Gauta Hjaltasyni.