149. löggjafarþing — 58. fundur,  29. jan. 2019.

AlbG fyrir GÞÞ, ÞórP fyrir ÞórE.

[13:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Þórunni Egilsdóttur um að þau geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Líkt og tilkynnt var á vef Alþingis í gær, mánudaginn 28. janúar, tóku sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. n., Albert Guðmundsson, og 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðaust., Þórarinn Ingi Pétursson. Þeir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.