fimm ára samgönguáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Að gefnu tilefni finn ég mig knúna til að koma hingað upp og hafna því að hér sé rætt á þann veg að formanni umhverfis- og samgöngunefndar, hv. þm. Bergþóri Ólasyni, hafi verið falið að bera þau skilaboð til meiri hlutans að minni hlutinn væri sammála þessari vegferð og að hann sé yfir höfuð þess umkominn að bera slík skilaboð á milli. Mér þykir þetta verulega sérkennilegt í ljósi þess að það á ekki að vera hv. þm. Jóni Gunnarssyni neitt leyndarmál hvernig hugur minni hlutans, a.m.k. hluta hans, hefur verið til þessa máls síðustu vikur. Það hefði verið hægur leikur þegar hann mætti á fundi að spyrja nánar um það ef það hefur verið eitthvert vafaatriði. Ég óska hér með eftir því að fá sjálf að flytja mín eigin skilaboð, sé eftir þeim óskað á annað borð og ætlunin sé að koma hingað upp og bera það fram hvað mér finnst um ákveðið mál.
Þessi kynning, gott að það er búið að koma fram og leiðrétta það, átti sér stað 20. nóvember. Það var umbeðið vegna þess að okkur þótti orðið ansi hjákátlegt að á sama tíma og nefndin sat og ræddi samgönguáætlun (Forseti hringir.) ráðherra voru þingmenn Sjálfstæðisflokksins í nefndinni á ferð um landið að kynna sínar hugmyndir. Við báðum því einfaldlega um að fá þessa kynningu (Forseti hringir.) til að vita um hvað væri rætt þar. (Gripið fram í: Hárrétt.)