149. löggjafarþing — 68. fundur,  20. feb. 2019.

störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar við útspili ríkisstjórnarinnar í skattamálum voru nokkuð fyrirsjáanleg. Ríkisstjórnin hefur, allt frá því að hún tók við völdum, reynt að gera hlut sinn í lausn yfirstandandi kjaradeilu sem mestan. Það voru mistök. Með því hefur ríkisstjórnin undirbyggt miklar væntingar af hálfu forystu verkalýðshreyfingarinnar varðandi væntanlegt útspil. Vonbrigði forystu hennar koma því ekki á óvart.

Ekki er þar með sagt að útspil ríkisstjórnarinnar í skattamálum sé með öllu ónothæft. Þær tillögur sem eru settar fram eru áhugaverðar þó að þær séu ekki af þeirri stærðargráðu sem verkalýðshreyfingin vænti. Það má vel vinna með þessar hugmyndir og það má einnig skoða aðrar útfærslur sem kæmu tekjulægstu hópunum enn betur til góða, samanber t.d. hugmyndir sem settar voru fram af hálfu samráðsvettvangs um aukna hagsæld og við í Viðreisn höfum grundvallað tillögur okkar í skattamálum á.

Mistök ríkisstjórnarinnar eru mistök í væntingastjórnun. Það er ekki hlutverk ríkisstjórna að leiða kjaraviðræður eða ætla sér of stórt hlutverk við lausn þeirra. Ábyrgð á lausn kjaradeilna liggur alltaf fyrst og síðast hjá aðilum vinnumarkaðarins. Það má heldur ekki vera svo að stjórnmálaflokkar, hvort sem er í meiri hluta eða minni hluta, séu að nýta sér kjaradeilur í pólitískum tilgangi. Þessi ríkisstjórn hefur ítrekað gert tilraun til að upphefja sig og mikilvægi sitt við lausn á þeirri stöðu sem uppi er á vinnumarkaði nú og situr með eggin í andlitinu eftir þá viðleitni.

Af þessu verður að draga lærdóm. Við sem störfum í stjórnmálum berum öll ábyrgð á því að leggja okkar af mörkum til að leysa þann hnút sem deilurnar eru komnar í en flækja þær ekki frekar. Það er líka rétt að minna á að kjaradeilur eiga ekki og mega ekki lögum samkvæmt beinast að stjórnvöldum. Kjaradeila sem beinist fyrst og fremst að Alþingi og ríkisstjórn en ekki að vinnuveitendum er pólitísk kjaradeila og sem slík brot á vinnulöggjöfinni. Það er líka ábyrgðarhluti af hálfu verkalýðshreyfingarinnar að fara fram með slíkum hætti.