149. löggjafarþing — 68. fundur,  20. feb. 2019.

störf þingsins.

[15:34]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Tillögur ríkisstjórnarinnar vegna stöðunnar á vinnumarkaði hafa valdið forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar miklum vonbrigðum. Þar telja menn ekki nóg að gert þegar litið er til upphæðanna sem þar eru undir. Það er hins vegar ekki síður eðli tillagnanna sem sætir undrun, sérstaklega í ljósi þess að það er hæstv. fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem leggur tillögurnar fram, tillögur um að flækja skattkerfið með fjölgun skattþrepa aftur í þrjú rétt eftir að búið var að fækka þeim niður í tvö eins og hæstv. fjármálaráðherra taldi mjög verðugt og mikilvægt viðfangsefni.

Það sætir líka undrun að til standi að afnema samsköttun hjóna. Sjálfstæðisflokkurinn boðaði fyrir ekki svo löngu að virða bæri vinnu heimavinnandi fólks, en nú virðist það gleymt eða ekki skipta máli lengur. Hæstv. fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins leggur fram tillögu um flóknara skattkerfi og afnám samsköttunar hjóna. Það hefði verið og væri miklu skynsamlegra að nýta það einstaka tækifæri sem nú gefst og þann vilja sem er til staðar, a.m.k. hjá stórum hluta verkalýðshreyfingarinnar, til að ráðast í kerfisbreytingar, alvöruúrbætur á fjármálakerfinu á Íslandi. Með því og með lægri vöxtum er hægt að ná gríðarlegum kjarabótum fyrir allan almenning á Íslandi en ekki bara fyrir fólk heldur líka fyrirtækin, báða aðila á vinnumarkaði. Það felur heldur ekki í sér nein veruleg útgjöld af hálfu ríkisins. Það felur einfaldlega í sér meiri þjóðhagslega hagkvæmni og mikinn ávinning, raunverulega lífskjarabót, fyrir fólkið og fyrirtækin í landinu.

Þess vegna er mikil synd ef ríkisstjórnin ætlar ekki að nýta þetta tækifæri heldur bregðast við með því að flækja skattkerfið enn frekar.