fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Ég vil nú reyndar meina að ef við tryggjum fjármálastarfseminni í landinu samkeppnishæft rekstrarumhverfi muni það auka virði bankanna sem að mestu eru í eigu íslenska ríkisins í dag. Það muni skila sér í því að framlag þeirra til samfélagsins eða til ríkisins og þannig óbeint til samfélagsins alls raungerist eftir réttri leið. En við getum verið ósammála um þetta.
Það má líka spyrja sig með þennan skatt, ef menn hafa trú á því að það sé gott fyrir fjármálakerfið að greiða sem hæsta skatta, af hverju menn leggi þá ekki bara til dálítið vel aukna skatta (IngS: Góð spurning.)og hvar efri mörkin eru þá í því. Ég er ekki sammála þessu. Ég held að við þurfum að tryggja samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir fjármálafyrirtæki. Það þarf í flestum atriðum að vera samanburðarhæft við önnur lönd og mér finnst þetta mjög vel rökstutt í hvítbókinni.