149. löggjafarþing — 91. fundur,  9. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:11]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti vill árétta við hv. þingmenn, og á þá ekki eingöngu við þá þingmenn sem ræddu hér síðast heldur fleiri sem tekið hafa til máls hér á fundinum, 66. gr. þingskapalaga þar sem segir: „Ræðumaður skal jafnan víkja ræðu sinni til forseta eða fundarins en eigi ávarpa nokkurn einstakan þingmann.“ Jafnframt vill forseti minna á 72. gr. þingskapa sem segir að eigi megi, nema með leyfi forseta, lesa upp prentað mál.