þungunarrof.
Hæstv. forseti. Nú kom hv. þingmaður inn á miklu stærra mál um hvernig svona hlutir gerast almennt. Ég geri mér alveg grein fyrir því að í mínum flokki eru skiptar skoðanir um þetta og ég held að það sé í fleiri flokkum, hvernig sem menn hafa komið fram í þessu máli. Og ég held að það væri bara hollt fyrir hvern og einn þingflokk, og allt þingið í sjálfu sér, að fara í þetta nákvæmlega og taka alvöruumræðu, án þess að berja í borðið eða djöflast með hótunum, um þessi grundvallaratriði, sem menn þurfa auðvitað að ræða um, réttindi fósturs, hvenær þau eigi að byrja, hvort þau séu engin eða eigi bara að vera engin þangað til fæðing er afstaðin — eða hvað? Og þessu held ég að menn veigri sér svolítið við, vegna þess að umræðan verður svo heit. Mönnum finnst það óþægilegt og menn fá á sig árásir (Forseti hringir.) og menn sem malda í móinn verða einhvers konar óþokkar.