ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Fyrst varðandi Noreg og þá fyrirvara sem gerðir voru þar. Það er ekkert sem bendir til þess að þeir hafi ekki haldið. Ekki neitt. Það er alveg skýrt þegar maður kynnir sér málið vel frá stjórnvöldum þar í landi. Varðandi það sem ég vitnaði í Bjarna Má þá var það ekki alveg nákvæmt. Hann segir: Þetta eru mikilvægar pólitískar yfirlýsingar. Því teljum við þessa fyrirvara gilda og það þarf kannski gera greinarmun líka á þjóðarétti og landsrétti. Hann segir og fleiri að þetta sé bæði pólitískt bindandi og þjóðréttarlega bindandi. Það er það sem skiptir máli í þessum fyrirvörum. Í rauninni eru þessir fyrirvarar staðfesting á því að við séum eyja. Mér finnst að það ætti svo sem ekki að koma nokkrum manni sérstaklega á óvart. Eftir að hafa fengið það staðfest bæði frá Evrópusambandinu og EFTA-ríkjunum, eftir að við áréttum það sérstaklega og vísum til þess þegar við afléttum stjórnskipulegum fyrirvara, þá erum við enn frekar að skjalfesta þann sameiginlega skilning. Sameiginlegi skilningurinn er frekar einfaldur. Við erum eyja og við erum ekki tengd raforkumarkaði Evrópusambandsins.