150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

samanburður á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi.

550. mál
[11:45]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Í mínum huga er ótækt að fara fram á þessa skýrslu meðan rannsókn stendur yfir á málum Samherja í Namibíu. Ég er svo sem ekkert sérstaklega á móti því að menn fari fram með skýrslubeiðnir og þegar þessari rannsókn verður lokið mun ég ekki setja mig upp á móti því.

Í mínum huga er þetta þó ekkert annað en sýndarmennska og því segi ég nei.