150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 27/2020 um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn.

. mál
[16:46]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti utanríkismálanefndar sem liggur fyrir á þskj. 1350. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund fulltrúa frá heilbrigðisráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og leggur nefndin því til að tillagan verði samþykkt. Undir álitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir, en Logi Einarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.