150. löggjafarþing — 135. fundur,  2. sept. 2020.

breyting á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru.

972. mál
[21:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá meiri hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru, frekari aðgerðir vegna vinnumarkaðar. Ég mun stikla á stóru í meginefni frumvarpsins.

Með frumvarpinu er lagt til að tímabil samkvæmt lögum um tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda án þess að vera sýktir, nr. 24/2020, verði framlengt til ársloka 2021. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hvað varðar atvinnutengda starfsendurhæfingu og heimild atvinnuleitenda til að stunda nám samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur.

Nokkuð var rætt um stöðu foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sem óhjákvæmilega geta ekki sinnt störfum sínum vegna þess að þjónusta liggur niðri eða vegna lokunar á leik- og grunnskólum eða frístundaheimili barna þeirra vegna smits í hópi starfsfólks, án þess að til komi sérstök tilmæli sóttvarnayfirvalda. Þessir foreldrar hafa ekki rétt á greiðslu samkvæmt framangreindum lögum en verða fyrir tekjuskerðingu vegna fjarveru frá vinnu og/eða þurfa að taka launalaust leyfi vegna fullnýtts orlofsréttar.

Meiri hlutinn tekur fram að félagsmálaráðuneytið hefur haft þessi mál til skoðunar um nokkra hríð. Í sumar var brugðist við með breytingu á reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna, nr. 504/1997, með síðari breytingum. Með þeirri breytingu var heimilt að greiða framfærendum barna, sem voru með gilt umönnunarmat á tilgreindu tímabili, eingreiðslu sem nemur 25% af fullum umönnunargreiðslum fyrir einn mánuð vegna aukinnar umönnunar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þó telur meiri hlutinn mikilvægt að staða þessa hóps verði skoðuð sérstaklega. Þá áréttar meiri hlutinn mikilvægi þess að ráðuneytið hafi þessi mál í stöðugri skoðun í samvinnu við hagsmunaaðila. Samhliða því megi taka til skoðunar stöðu foreldra almennt sem geta ekki sinnt störfum vegna skertrar þjónustu eða lokunar skólastiga sökum faraldursins. Með hliðsjón af framangreindu leggur meiri hlutinn að svo stöddu ekki til sérstakar breytingar þess efnis á frumvarpinu.

Með frumvarpinu er lagt til að réttur til tekjutengdra atvinnuleysisbóta fari úr þremur mánuðum í sex mánuði, enda séu ákveðin skilyrði uppfyllt. Að mati meiri hlutans er hér um mjög mikilvægt skref að ræða til að takast á við þær aðstæður sem komið hafa upp í íslensku samfélagi vegna heimsfaraldursins. Markmiðið með framlengingunni er að komið sé til móts við einstaklinga sem orðið hafa fyrir atvinnumissi og munu búa við skerta möguleika á atvinnu næstu misseri.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar í því skyni að styðja við möguleika einstaklinga sem hverfa tímabundið af vinnumarkaði vegna sjúkdóms eða slyss til að verða að nýju virkir þátttakendur á vinnumarkaði. Meiri hlutinn fagnar þessum breytingum og telur þær jákvætt skref í að auka vinnufærni umræddra einstaklinga og stuðla að því að þeir verði að nýju þátttakendur á vinnumarkaði. Fyrir nefndinni kom fram það sjónarmið að mikilvægt væri að um varanlega breytingu væri að ræða en ekki tímabundna breytingu til að bregðast við heimsfaraldrinum. Meiri hlutinn áréttar þess vegna að þær breytingar sem varða atvinnutengda starfsendurhæfingu eru varanlegar.

Með frumvarpinu er lagt til að hámark ECTS-eininga verði hækkað úr 10 í 12 þannig að heimilt verði að stunda háskólanám sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn að öðrum skilyrðum uppfylltum, samanber 2. tölulið b-liðar 6. gr. frumvarpsins. Á fundum nefndarinnar var bent á að einingafjöldi eftir fræðasviðum geti verið mismunandi. Fullt nám er skilgreint sem 30 ECTS-einingar og þá sé lágmarksframvinda til að fá afgreidd námslán 22 ECTS-einingar eða ígildi þeirra á hverju misseri. Framangreind hækkun ECTS-eininga veiti því stúdentum ekki frekara svigrúm en fyrir einu til tveimur námskeiðum og gagnist ekki stúdentum sem stunda fullt nám. Þá leiði breytingin til þess að einhverjir geti hvorki sótt um námslán né átt rétt á atvinnuleysisbótum. Meiri hlutinn telur að skoða þurfi með nánari hætti hámark námshlutfalls samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta, meðal annars með hliðsjón af því hvað teljist lánshæft nám hjá Menntasjóði námsmanna. Þar sem hækkun eininga samkvæmt frumvarpinu leiðir ekki til þess að bilið sé brúað á milli lánshæfs náms og náms meðfram atvinnuleysistryggingum þarf að kanna hversu mikill fjöldi falli milli skips og bryggju og eigi þannig hvorki rétt á námsláni né atvinnuleysisbótum. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að þetta verði tekið til frekari skoðunar við heildarendurskoðun laganna. Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að Vinnumálastofnun verði heimilt að gera sérstakan námssamning við atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins, samanber a-lið 9. gr. frumvarpsins, og fellur undir Nám er tækifæri. Meiri hlutinn tekur fram að heimild atvinnuleitanda til að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta nái eingöngu til einnar annar. Hins vegar er Vinnumálastofnun heimilt á grundvelli d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, að styrkja námsráðgjöf í eitt skólaár, eða því sem nemur tveimur önnum, enda haldi viðkomandi atvinnuleitandi áfram námi eftir að fyrstu önninni lýkur. Markmið slíkra aðgerða er að koma í veg fyrir brotthvarf úr námi og tryggja um leið aukna og þétta þjónustu skólanna.

Með frumvarpinu er lagt til að réttur launþega til atvinnuleysisbóta samhliða lækkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda að frekari skilyrðum uppfylltum, hin svokallaða hlutabótaleið, framlengist til 31. október 2020, samanber 8. gr. frumvarpsins. Samhljómur var á meðal umsagnaraðila um ágæti úrræðisins til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru. Hlutabótaleiðin geri fyrirtækjum kleift að viðhalda ráðningarsambandi með minnkuðu starfshlutfalli launamanna og tryggi sjálfstætt starfandi einstaklingum með eigin rekstur í félagi svigrúm til þess að draga úr rekstri án þess að verða fyrir óviðráðanlegu tekjutapi vegna faraldursins. Fram komu sjónarmið um að tryggja þyrfti fyrirsjáanleika á vinnumarkaði á meðan efnahagslegra áhrifa faraldursins gætir. Af þeim sökum væri mikilvægt að úrræðið yrði framlengt til lengri tíma en til 31. október 2020.

Í ljósi þess er lagt til að framlengja tímabil hlutabótaleiðarinnar til 31. desember 2020. Auk þess bendir meiri hlutinn á að framangreindum bráðabirgðaákvæðum var upphaflega ætlað að gilda til 1. júní 2020 en voru síðan framlengd til 1. september 2020. Þau bráðabirgðaákvæði eru nú fallin úr gildi þar sem síðasta framlenging var til 1. september 2020. Þarf því að taka ákvæðin upp að nýju í heild og leggur meiri hlutinn til breytingar þess efnis.

Við meðferð málsins var rætt um stöðu listamanna og sviðslistafólks sem ekki hafi verið nægilega vel tryggð með þeim aðgerðum sem hefðu verið samþykktar vegna áhrifa heimsfaraldursins. Þá tæki afgreiðsla umsókna þeirra hjá Vinnumálastofnun of langan tíma. Fyrir nefndinni kom fram að vegna mikils álags á Vinnumálastofnun hefði afgreiðsla umsókna tafist og nokkur hluti umsækjenda þurft að bíða lengur en átta vikur. Á hinn bóginn hefði biðtími styst eftir því sem liðið hefði á sumarið og afgreiðslutími umsókna ætti ekki að vera lengri en fjórar vikur þegar stofnunin væri komin yfir erfiðasta hjallann vegna faraldursins.

Á undanförnum árum hefur sú breyting að einhverju leyti átt sér stað á Íslandi og víðar á Vesturlöndum að hið hefðbundna ráðningarsamband launamanns og vinnuveitanda hefur breyst. Í æ ríkara mæli er fólk ekki í fastbundnu ráðningarsambandi við einn tiltekinn atvinnurekanda, heldur með flóknara samband, og á þetta ekki síst við um listafólk. Tekjur geta sveiflast verulega og vinnutími er ekki reglulegur. Vera kann að sambandið milli réttindaávinnslu og greiðslna tryggingagjalds sé því ekki eins skýrt og áður og að sókn viðkomandi til nýtingar réttinda sé ekki eins augljós og í einföldu ráðningarsambandi. Þessi staða einskorðast ekki við fólk í listum. Meiri hlutinn beinir því til félagsmálaráðuneytis að í heildarendurskoðun á lögum um atvinnuleysistryggingar verði þessir þættir skoðaðir sérstaklega. Þá bendir meiri hlutinn einnig á að slík vinna þurfi að einhverju leyti að vera í samvinnu við fleiri ráðuneyti, einkum það ráðuneyti sem fer með málefni listamanna. Þau bóta- og framfærslukerfi sem fólk reiðir sig á verða á hverjum tíma að endurspegla þann raunveruleika sem er í samfélaginu með tilliti til vinnumarkaðar og sambands launamanns og launagreiðanda. Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að hraða þessari vinnu.

Nefndin fjallaði um skörun bótakerfa og þá staðreynd að greiðslur ellilífeyris geti virkað til skerðingar á hlutabótum. Samkvæmt hlutastarfaleiðinni greiða stjórnvöld hluta launa þeirra sem lækka tímabundið í starfshlutfalli. Upp hafa komið tilvik þar sem greiðslur ellilífeyris hafa komið til lækkunar á hlutabótum. Meiri hlutinn leggur því til breytingu þess efnis að greiðslur ellilífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar og úr almennum lífeyrissjóðum komi ekki til skerðingar hlutabóta.

Við meðferð málsins komu fram frekari sjónarmið um leiðir til að tryggja afkomuöryggi einstaklinga, einkum á meðan efnahagslegra áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru gætir, svo sem sjónarmið um hækkun fjárhæðar grunnatvinnuleysisbóta, framlenging bótaréttar atvinnuleysistrygginga og hækkun tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Þá komu einnig fram sjónarmið um rétt stúdenta til atvinnuleysisbóta í námshléum. Meiri hlutinn áréttar að ekki er gert ráð fyrir að þær tímabundnu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu verði til frambúðar. Hins vegar er í vinnslu heildarendurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. Meiri hlutinn telur mikilvægt að framangreind sjónarmið sem og tillögur sem hafa borist við meðferð málsins verði tekin til frekari skoðunar. Þá beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að tryggja víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila, m.a. við stúdenta. Meiri hlutinn telur mikilvægt að hugað sé að skilvirkri framkvæmd. Áður hefur verið gert ráð fyrir kostnaði vegna umsýslu Vinnumálastofnunar, svo sem vegna þróunar hugbúnaðar og sá kostnaður gæti numið um 3 millj. kr., sem og að stofnunin þyrfti að bæta við sig fleiri stöðugildum.

Auk þeirra breytinga sem lýst er hér að framan leggur meiri hlutinn til minni háttar breytingar til lagfæringar og leiðréttingar. Með hliðsjón af framansögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku skjali sem fylgir málinu sem ég mun ekki gera sérstaklega grein fyrir en liggur hér frammi.

Hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk þessu áliti. Undir álitið skrifa eftirtaldir hv. þingmenn: Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Ég tel að þetta mál sé mjög góð innspýting við þær aðstæður sem við búum við núna. Þetta eru góðar og öflugar vinnumarkaðsaðgerðir. Sérstaklega vil ég nefna framlengingu á tekjutengdum atvinnuleysisbótum úr þremur mánuðum í sex mánuði sem ég tel mjög mikilvægt og að laun í sóttkví séu framlengd sem og atvinnutengd starfsendurhæfing til að auka virkni og stuðla að þátttöku á vinnumarkaði, mjög mikilvægt úrræði, og heimild til að stunda allt að 12 einingar í námi á önn, hækkun úr tíu einingum. Það skiptir allt máli þó að alltaf megi gera betur. Heimild til að stunda nám á atvinnuleysisbótum og að hlutabótaleiðin sé framlengd til áramóta er líka mikilvægt við þessar aðstæður. Nám er tækifæri, að gefa fólki á atvinnuleysisbótum tækifæri til að fara í nám samhliða því að vera á atvinnuleysisbótum er líka mjög gott úrræði og hvatning fyrir fólk til að halda áfram námi og fá stuðning til þess af hálfu Vinnumálastofnunar með samningum og að fá námsaðstoð í framhaldinu til þess að halda áfram námi ef viðkomandi óskar þess. En ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta en legg til að málið fái góða afgreiðslu á þessu þingi.