samkomulag ríkis og sveitarfélaga um málefni fatlaðra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Líkt og þingmaðurinn bendir á eigum við sem samfélag að tryggja öllum einstaklingum það líf, þá stöðu að geta búið með þeim hætti sem þeir vilja. Það ekki eðlilegt og er beinlínis gegn þeim lögum sem við höfum sett og sáttmálum sem við höfum samþykkt að einstaklingar séu vistaðir á stofnunum en geti ekki búið þar sem þeir vilja.
Að því sögðu höfum við verið að stíga stór skref m.a. á þessu kjörtímabili, með innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar. Þar höfum við samþykkt stór lagafrumvörp með breytingum til að innleiða þá hugsun sem þar er. Sú þjónusta hvílir að öðru leyti á herðum sveitarfélaga landsins. Sveitarfélögunum ber að sinna þeirri þjónustu. Við tryggjum þeim ákveðið fjármagn til þess og þeim ber að gera það samkvæmt lögum og reglum. Hins vegar hafa einstaka sveitarfélög haft samband við ráðuneytið og í umræðu og annars staðar, sem telja að fjármuni vanti inn í kerfið. Við höfum verið að bæta fjármunum inn í kerfið. Við gerðum það m.a. nýverið í tengslum við samninga við sveitarfélögin sem forystumenn ríkisstjórnarinnar kynntu vegna Covid-19. Við höfum bætt inn í NPA-samningana þannig að bætt hefur verið í það málefni.
Er ástæða til að skoða eitthvað í lagaumbúnaði og öðru? Já, það er ástæða til að fara yfir þá reynslu sem verið hefur af NPA-verkefninu, hvaða breytingar við þurfum að gera þar. Við ræddum það þegar þau lög voru samþykkt. En skoðun á því mun ekki fela í sér skerðingu á réttindum fatlaðs fólks, síður en svo, heldur verður skoðað með hvaða hætti við getum sinnt þessu betur, gert þetta betur og þar af leiðandi tryggt og aukið fjármagn við málaflokkinn, sem við höfum sannarlega verið að gera í tíð þessarar ríkisstjórnar.