151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

fjármálafyrirtæki.

7. mál
[14:00]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Við erum búin að samþykkja hvaða hlutfall varð ofan á í þessu, sem voru 15%. Eftir stendur þá þessi tillaga um að innan fjögurra ára taki menn það hlutfall til endurskoðunar. Ég tel mjög skynsamlegt að hafa slík endurskoðunarákvæði og hvet þingheim eindregið til að samþykkja það þannig að við getum þá í ljósi reynslunnar hækkað það, lækkað eða afnumið.