151. löggjafarþing — 92. fundur,  10. maí 2021.

veiðigjöld og arður í sjávarútvegi.

[13:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í ræðu á landsfundi Vinstri grænna um helgina sagði forsætisráðherra, með leyfi: „Við viljum auðlindaákvæði í stjórnarskrá og sanngjarna rentu þeirra sem nýta sameiginlegar auðlindir til samfélagsins.“ Árið 2019 greiddi öll útgerðin 6,6 milljarða kr. í veiðigjöld fyrir nýtingu á sameiginlegri fiskveiðiauðlind. Sama ár greiddu sjávarútvegsfyrirtæki 10,3 milljarða í arð. Árið 2020 námu veiðigjöldin 4,8 milljörðum og þó að enn sé ekki vitað með vissu hvernig arðgreiðslur verða hjá fyrirtækjum er hins vegar ljóst að eitt fyrirtæki, Brim, greiddi 2,3 milljarða í arð, helming allra greidda veiðigjalda í landinu. Frá árinu 2010 hafa sjávarútvegsfyrirtæki greitt 103 milljarða kr. til eigenda sinna í arðgreiðslur, tæplega tvöfalt meira en veiðigjöld sama tímabils. Ég tel þess vegna augljóst að við fáum ekki sanngjarna rentu og að núverandi fyrirkomulag ýti undir óhóflega auðsöfnun á fárra hendur og geri þeim líka kleift að ná tangarhaldi í mörgum greinum og mjög víða í samfélaginu.

Spurningin er: Telur hæstv. forsætisráðherra þá sem nýta sameiginlegu fiskveiðiauðlindina greiða sanngjarna rentu til samfélagsins?