svar við fyrirspurn.
Virðulegur forseti. Ég þakka forseta ráðleggingar um að beina óundirbúnum fyrirspurnum til hæstv. ráðherra, en svör við slíkum fyrirspurnum eru oft á tíðum mjög rýr í roðinu. Alla vega á það við um nokkur síðustu tilvik þar sem sá sem hér stendur hefur tekið til máls undir þeim lið. Það er hins vegar áhyggjuefni mitt, herra forseti, hvernig reynt er, að því er virðist skipulega, að draga úr eftirlitshlutverki þingmanna sem er heilög skylda og stjórnarskrárbundinn réttur. Það virðist gilda einu máli hvort um er að ræða aðila utan eða innan þings. Reynt er að tefja fyrir og koma í veg fyrir að upplýsingar sem varða eftirlitsskyldu þingmanna og varða almannahag séu látnar af hendi þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í þá átt. Það er alvarlegt, herra forseti.