151. löggjafarþing — 96. fundur,  17. maí 2021.

ferðagjöf.

776. mál
[16:08]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá meiri hluta atvinnuveganefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ferðagjöf.

„Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigrúnu Brynju Einarsdóttur og Heimi Skarphéðinsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Elías Bj. Gíslason frá Ferðamálastofu, Gunnar Val Sveinsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar og Vilhjálm Bjarnason, formann safnaráðs.

Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Ferðamálastofu, Markaðsstofum landshlutanna, Persónuvernd, Samtökum ferðaþjónustunnar og Vilhjálmi Bjarnasyni, formanni safnaráðs.

Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020. Lögð er til endurnýjun ferðagjafar þar sem gildistími nýrrar ferðagjafar, að fjárhæð 5.000 kr., verði frá og með 1. júní 2021 til með 31. ágúst 2021. Lög um ferðagjöf tóku gildi 23. júní 2020 en á grundvelli þeirra fengu einstaklingar sem falla undir skilyrði 1. mgr. 1. gr. laganna stafræna 5.000 kr. inneign sem nýta má til að greiða fyrir þjónustu frá útgáfudegi til og með 31. desember 2020 hjá þeim fyrirtækjum sem eru skilgreind í 2. mgr. 1. gr. laganna. Gildistími þessarar ferðagjafar var framlengdur til maí 2021, sbr. breytingalög þess efnis sem tóku gildi 31. desember 2020. Áfram er gert ráð fyrir að hafi fyrri útgáfa ferðagjafar ekki verið nýtt fyrir 1. júní 2021 falli hún niður. Nefndin telur í ljósi framangreinds mikilvægt að skýrar sé kveðið á um annars vegar gildistíma nýrrar ferðagjafar og hins vegar hvenær sú eldri fellur niður og leggur til breytingar þess efnis.

Fyrir nefndinni kom fram það sjónarmið að lengja mætti gildistíma eldri ferðagjafar og þeirrar nýju. Ferðagjöfin hafi haft jákvæð áhrif á ferðaþjónustu og með framlengingu væri þeim sem starfa innan ferðaþjónustu á hánnatíma veitt svigrúm til að nýta nýju ferðagjöfina. Nefndin tekur undir sjónarmið um mikilvægi ferðagjafar fyrir ferðaþjónustuna nú rúmlega ári eftir að glíman við kórónuveiruna hófst. Endurnýjun ferðagjafar yfir sumartímann er liður í að auka innlenda eftirspurn og því mikilvægur þáttur í viðspyrnu ferðaþjónustunnar. Nefndin tekur einnig fram, líkt og segir í greinargerð með frumvarpinu, að framlenging gildistíma er tilkynningarskyld til Eftirlitsstofnunar EFTA og háð samþykki hennar. Nefndin leggur til að gildistími nýrrar ferðagjafar verði framlengdur út septembermánuð 2021. Aðrar breytingartillögur nefndarinnar eru tæknilegs eðlis og ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.“

Breytingarnar sem við erum með eru að 1. gr. orðist svo:

„Við 5. mgr. 1. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Gildistími ferðagjafar 2021 er frá og með 1. júní til og með 30. september. […]

Á eftir orðinu „endurskipulagningaraðstoð“ í 2. efnismgr. 2. gr. komi: eða verið tekið til slita eða bú þess til gjaldþrotaskipta. […]

Efnismálsgrein 3. gr. orðist svo: Hafi ferðagjöf með gildistíma til og með 31. maí 2021 skv. 1. málsl. 5. mgr. 1. gr. ekki verið nýtt fyrir 1. júní 2021 fellur hún niður.

Helgi Hrafn Gunnarsson og Ólafur Ísleifsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álit þetta í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson skrifa undir álit þetta með fyrirvara.“

Undir þetta álit skrifa hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður, Njáll Trausti Friðbertsson framsögumaður, Ásmundur Friðriksson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Haraldur Benediktsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Ólafur Ísleifsson, með fyrirvara, og Sigurður Páll Jónsson, með fyrirvara.

Þetta er nefndarálitið eins og það liggur fyrir núna. Ég ætla að óska eftir því sem framsögumaður málsins að það fari til atvinnuveganefndar á nýjan leik á milli 2. og 3. umr. Það eru að koma fram upplýsingar núna sem þarf að fá á hreint í nefndinni sem snúa að ríkisstyrkjareglum ESA, hvaða tímabil megi nota. Við höfum fengið upplýsingar, sem voru að detta inn núna, um að það mætti mögulega vera til áramóta þótt við hefðum fengið upplýsingar á vefsíðu ESA um að það væri til 30. september sem ríkisstyrkjareglurnar giltu um þá ríkisaðstoð sem þarna er. Ég tel því rétt sem framsögumaður málsins að við köllum það inn á milli 2. og 3. umr. til að fá þessa efnislegu hluti á hreint.

Hugmyndin er að við ræðum síðan efnislega um af hverju eigi að klippa á núna 1. júní og færa fjármagnið inn í nýja ferðagjöf, ferðagjöf 2 eins og við köllum hana, og nýta það fjármagn sem er vannýtt í þessu. Ég var að skoða mælaborð ferðaþjónustunnar áðan og þá virtist, ef ég man það rétt, vera búið að taka út úr kerfinu rúman milljarð en nýta tæpar 800 milljónir. Síðan er hugsunin að nýta þetta í gegnum fjáraukalögin, sem við samþykktum í fyrra, og fjárheimildir í fjárlögum — færa það yfir í nýju ferðagjöfina.

Það sem kemur líka í ljós ef við skoðum málið er að á allra síðustu mánuðum hefur þeim ekki fjölgað mikið sem hafa nýtt sér þessa 5.000 kr. ferðagjöf. Um 206.000 manns af 280.000 hafa tekið við ferðagjöfinni en einhver 20.000–30.000 hafa ekki nýtt sér hana. Ef ég man rétt eru kannski um 176.000 búin að nýta sér hana að fullu, einhverjir eru búnir að nýta hluta hennar og aðrir hafa ekki tekið neitt til sín í gegnum Stafrænt Ísland. Þetta er bara eftir minni það sem ég var að lesa á mælaborði ferðaþjónustunnar.

Það þarf að fá þetta á hreint, sérstaklega það sem snýr að ríkisstyrkjareglum ESA og hvaða tímamörk við getum nýtt okkur í málinu. Þannig að ég tel eðlilegt, eins og ég sagði áðan, sem framsögumaður málsins að við fáum málið aftur inn í atvinnuveganefnd á milli 2. og 3. umr. til að fá algerlega á hreint hvað við erum að eiga við.