151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[19:28]
Horfa

Frsm. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti minni hluta velferðarnefndar við þetta frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar o.fl.

Minni hluti velferðarnefndar styður frumvarpið en telur það mikil vonbrigði að stjórnvöld ætli enn og aftur að skilja námsmenn eftir þegar kemur að nauðsynlegum úrræðum vegna atvinnuleysis. Minni hlutinn leggur því til breytingar á frumvarpinu þess efnis að brugðist verði við fyrirsjáanlegum atvinnuvanda námsmanna á komandi sumri. Það er deginum ljósara að fjöldamargir námsmenn verða án atvinnu yfir sumartímann og verða þar með af tekjum sem þeir hefðu ella reitt sig á. Af þessum sökum er lagt til að námsmönnum verði tryggður réttur til atvinnuleysisbóta í sumar.

Allt að 70% námsmanna framfleyta sér með hlutastörfum samkvæmt könnun Eurostudent en fjöldi slíkra starfa hvarf í faraldrinum án þess að stjórnvöld tækju tillit til þess og kæmu námsmönnum til aðstoðar. Vakin er athygli stjórnvalda á því að námsmönnum sem taka námslán hefur fækkað um helming á undanförnum tíu árum, oftar en ekki vegna ónógrar framfærslufjárhæðar námslána. Námsmenn greiða sinn hluta inn í atvinnuleysistryggingakerfið þegar þeir eru á vinnumarkaði án þess að njóta nokkurra réttinda í kerfinu. Það skapar misrétti sem ekki er hægt að gera námsmönnum og fjölskyldum þeirra að búa við.

Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Á eftir 3. gr. komi ný grein, svohljóðandi:

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 52. gr. er heimilt að greiða atvinnuleysisbætur frá 1. júní 2021 til 31. ágúst 2021 til þeirra sem stunda nám, samanber c-lið 3. gr.

Undir þetta rita sú sem hér stendur, Guðmundur Ingi Kristinsson, hv. þm. Flokks fólksins og Halldóra Mogensen, hv. þm. Pírata.

Hvers vegna þetta? Við erum að tala um mjög afmarkað tímabil. Við erum að tala um eingöngu í sumar, ekki til frambúðar og minnum á, enn og aftur, að námsmenn eru alls konar. Sumir námsmenn geta búið svo til frítt í foreldrahúsum en aðrir námsmenn hafa fyrir fjölskyldu að sjá, þurfa að greiða húsaleigu o.s.frv. og þurfa því fulla framfærslu á þessum tíma en yfir sumarmánuðina eru engin námslán í boði. Fjöldi námsmanna á ekki rétt á námslánum og getur því ekki framfleytt sér með þeim. Af þessum sökum verður að koma þessu fólki til aðstoðar. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga gerir það ekki enda eiga námsmenn sjaldnast rétt á slíkri aðstoð og það er þess vegna, herra forseti, sem við viljum leggja þetta til. Þetta er réttlætismál. Þetta er bráðabirgðaákvæði sem er eingöngu tímabundið til að koma þessum ágæta þjóðfélagshópi til aðstoðar núna á þessum tímum í kjölfar kórónuveirufaraldurs og ég vona að þingið samþykki þessa tillögu.