nafnskírteini.
Frú forseti. Í greinargerð með frumvarpinu segir varðandi nafnskírteini sem gefin eru út til erlendra ríkisborgara sem dveljast hér á landi að þau skuli áfram útgefin af Útlendingastofnun, sem sagt ekki af hálfu Þjóðskrár. Samkvæmt greinargerðinni þá er ástæðan fyrir þessu sú að sérstök sjónarmið gildi um erlenda ríkisborgara sem dvelja hér á landi, meðal annars við að staðfesta að persónuupplýsingar þeirra séu réttar. Hér erum við að tala um ferðaskilríki og dvalarskírteini sem jafnan líka geta veitt möguleika til ferðalaga og annað slíkt og mögulega annars konar nafnskírteini þegar fram líða stundir. Það sem ég velti fyrir mér er hver raunverulegu rökin eru fyrir því að Útlendingastofnun sjái um útgáfu þessara skírteina en að þau séu ekki einfaldlega í nákvæmlega sama ferli og skírteini sem gefin eru út fyrir íslenska borgara. Ég veit ekki betur en að það sé mikil sérþekking hjá þeim sem eru að gera þessi skírteini og gefa þau út fyrir Íslendinga, að það sé mikil sérþekking við staðfestingu persónuupplýsinga við yfirferð gagna sem staðfesta það. Þannig að fyrri spurningin mín er: Hver er ástæðan fyrir því að það er talið rétt að aðskilja þetta svona? Rökin sem koma fram í greinargerðinni virðast ekki alla vega tæmandi. Þau útskýra það ekki nákvæmlega. Svo langaði mig að spyrja líka hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að það verði áframhaldandi viðvarandi vandamál að Útlendingastofnun geti ekki gefið út dvalar- og ferðaskírteini fyrir útlendinga vegna þess að þau eigi ekki til plastkortin. Þetta er vandamál sem hefur verið viðvarandi síðustu ár og augljóst að útgáfa þessara skírteina er ekki í neinum forgangi hjá stofnuninni. Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi í hyggju að bæta eitthvað úr þessu.