Alþingiskosningar 1927
Þess var getið í kosningaskýrslu ársins 1927 að kosið hefði verið í öllum kjördæmum landsins en það hafði alloft borið við að kosningar féllu niður í kjördæmi vegna þess að aðeins einn var þar í framboði og varð þá sjálfkjörinn.
Fjórir stjórnmálaflokkar buðu fram við þingkosningarnar 9. júlí 1927, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn, en ekki buðu allir flokkar fram í öllum kjördæmum.
Um kosningarnar | ||
Kjördagur | 9. júlí 1927 | |
Mannfjöldi | 101.730 | |
Kjósendur á kjörskrá | 46.047 | |
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 44,9% | |
Greidd atkvæði | 32.928 | |
Kosningaþátttaka | 71,5% | |
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 32,4% | |
Kosningaþátttaka karla | 81,5% | |
Kosningaþátttaka kvenna | 62,5% | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | 36 | |
Landskjörnir þingmenn | 6 | |
Heildarfjöldi þingmanna | 42 | |
Kosningaúrslit – kjördæmakjörnir þingmenn | ||
Gild atkvæði | 32.009 | |
Íhaldsflokkur | 42,5% | 13 þingmenn |
Framsóknarflokkur | 29,8% | 17 þingmenn |
Alþýðuflokkur | 19,1% | 4 þingmenn |
Frjálslyndi flokkurinn | 5,8% | 1 þingmaður |
Utan flokka | 2,8% | 1 þingmaður |
Kjördæmi og þingmenn 1927 | |
Reykjavík | 2 |
Gullbringu- og Kjósarsýsla | 2 |
Árnessýsla | 2 |
Rangárvallasýsla | 2 |
Vestmannaeyjar | 1 |
Vestur-Skaftafellssýsla | 1 |
Austur-Skaftafellssýsla | 1 |
Suður-Múlasýsla | 2 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 1 |
Norður-Múlasýsla | 2 |
Norður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Suður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Eyjafjarðarsýsla | 2 |
Akureyri | 1 |
Skagafjarðarsýsla | 2 |
Austur-Húnavatnssýsla | 1 |
Vestur-Húnavatnssýsla | 1 |
Strandasýsla | 1 |
Norður-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Ísafjarðarkaupstaður | 1 |
Vestur-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Barðastrandarsýsla | 1 |
Dalasýsla | 1 |
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla | 1 |
Mýrasýsla | 1 |
Borgarfjarðarsýsla | 1 |