Alþingiskosningar 1949

Þing var rofið 12. ágúst 1949 og alþingiskosningar fóru fram 23. og 24. október það ár. Í þéttbýli var aðeins einn kjördagur, 23. október, en í dreifbýli var heimilt að halda einnig kosningar 24. október.

Fjórir stjórnmálaflokkar lögðu fram framboðslista við kosningarnar, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Sósíalistaflokkur, og buðu fram í öllum kjördæmum nema Alþýðuflokkurinn hafði ekki frambjóðendur í Austur-Skaftafellssýslu.

Um kosningarnar
Kjördagur 23.–24. október 1949
Mannfjöldi 138.502
Kjósendur á kjörskrá 82.481
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda 58,7%
Greidd atkvæði 73.432
Kosningaþátttaka 89,0%
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda 53,0%
Kosningaþátttaka karla 92,3%
Kosningaþátttaka kvenna 85,9%
Kjördæmakjörnir þingmenn 41
Jöfnunarþingmenn 11
Heildarfjöldi þingmanna 52
Kosningaúrslit
Gild atkvæði 72.219
Sjálfstæðisflokkur   39,5%  19 þingmenn
Framsóknarflokkur   24,5%  17 þingmenn
Sósíalistaflokkur   19,5%  9 þingmenn
Alþýðuflokkur 16,5% 7 þingmenn
Jöfnunarþingmenn
Sósíalistaflokkur 6
Alþýðuflokkur 3
Sjálfstæðisflokkur 2
Kjördæmi og þingmenn 1949
Einmenningskjördæmi
Borgarfjarðarsýsla 1
Mýrasýsla 1
Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla 1
Dalasýsla 1
Barðastrandarsýsla 1
Vestur-Ísafjarðarsýsla 1
Ísafjarðarkaupstaður 1
Norður-Ísafjarðarsýsla 1
Strandasýsla 1
Vestur-Húnavatnssýsla 1
Austur-Húnavatnssýsla 1
Siglufjarðarkaupstaður 1
Akureyrarkaupstaður 1
Suður-Þingeyjarsýsla 1
Norður-Þingeyjarsýsla 1
Seyðisfjarðarkaupstaður 1
Austur-Skaftafellssýsla 1
Vestur-Skaftafellssýsla 1
Vestmannaeyjakaupstaður 1
Hafnarfjarðarkaupstaður 1
Gullbringu- og Kjósarsýsla 1
Tvímenningskjördæmi – hlutfallskosning
Skagafjarðarsýsla 2
Eyjafjarðarsýsla og Siglufjarðarkaupstaður 2
Norður-Múlasýsla 2
Suður-Múlasýsla og Neskaupstaður 2
Rangárvallasýsla 2
Árnessýsla 2
Kjördæmi með hlutfallskosningu
Reykjavík 8