Alþingiskosningar 1959 – síðari kosningar ársins

Á aukaþingi sem kom saman 21. júlí 1959 voru samþykktar breytingar á stjórnarskrá og kosningalögum. Kjördæmaskipan gerbreyttist; kjördæmi urðu átta en höfðu verið 28 í síðustu þingkosningum og hlutfallskosning varð allsráðandi. Þingmönnum var fjölgað úr 52 í 60. Kosningalögum var einnig breytt til samræmis við stjórnarskrárbreytingarnar og þingkosningar voru haldnar um haustið. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í hinum nýju kosningalögum var heimilt að kjördagar yrðu tveir í dreifbýli.

Hin nýju kjördæmi voru: Reykjavíkurkjördæmi – 12 þingmenn, Reykjaneskjördæmi – 5 þingmenn, Vesturlandskjördæmi – 5 þingmenn, Vestfjarðakjördæmi – 5 þingmenn, Norðurlandskjördæmi vestra – 5 þingmenn, Norðurlandskjördæmi eystra – 6 þingmenn, Austurlandskjördæmi – 5 þingmenn, Suðurlandskjördæmi – 6 þingmenn. Jöfnunarþingmenn voru 11.

Fimm stjórnmálasamtök buðu fram við þingkosningarnar í október 1959: Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Þjóðvarnarflokkur. Flokkarnir buðu fram í öllum kjördæmum nema Þjóðvarnarflokkurinn sem bauð einungis fram í Reykjavíkurkjördæmi og Norðurlandskjördæmi eystra.

Um kosningarnar
Kjördagur 25.–26. október 1959
Mannfjöldi 170.156
Kjósendur á kjörskrá 95.637
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda 55,2%
Greidd atkvæði 86.426
Kosningaþátttaka 90,4%
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda 50,7%
Kosningaþátttaka karla 93,0%
Kosningaþátttaka kvenna 87,8%
Kjördæmakjörnir þingmenn 49
Jöfnunarþingmenn 11
Heildarfjöldi þingmanna 60
Kosningaúrslit
Gild atkvæði 85.095
Sjálfstæðisflokkur   39,7%  24 þingmenn
Framsóknarflokkur   25,7%  17 þingmenn
Alþýðubandalag 16,0% 10 þingmenn
Alþýðuflokkur 15,2%  9 þingmenn
Þjóðvarnarflokkur 3,4%
Jöfnunarþingmenn
Alþýðubandalag 4
Alþýðuflokkur 4
Sjálfstæðisflokkur 3
Kjördæmi og þingmenn 25.–26. október 1959
Reykjavíkurkjördæmi 16 þingmenn
Reykjaneskjördæmi 7 þingmenn
Vesturlandskjördæmi 5 þingmenn
Vestfjarðakjördæmi 6 þingmenn
Norðurlandskjördæmi vestra 7 þingmenn
Norðurlandskjördæmi eystra 8 þingmenn
Austurlandskjördæmi 5 þingmenn
Suðurlandskjördæmi 6 þingmenn
Þingmenn að loknum alþingiskosningum 25.–26. október 1959
Reykjavíkurkjördæmi
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokkur
2. Auður Auðuns Sjálfstæðisflokkur
3. Einar Olgeirsson Alþýðubandalag
4. Gylfi Þ. Gíslason Alþýðuflokkur
5. Jóhann Hafstein Sjálfstæðisflokkur
6. Gunnar Thoroddsen Sjálfstæðisflokkur
7. Þórarinn Þórarinsson Framsóknarflokkur
8. Ragnhildur Helgadóttir Sjálfstæðisflokkur
9. Alfreð Gíslason Alþýðubandalag
10. Eggert G. Þorsteinsson Alþýðuflokkur
11. Ólafur Björnsson Sjálfstæðisflokkur
12. Pétur Sigurðsson Sjálfstæðisflokkur
Jöfnunarþingmenn
13. Sigurður Ingimundarson Alþýðuflokkur
14. Eðvarð Sigurðsson Alþýðubandalag
15. Birgir Kjaran Sjálfstæðisflokkur
16. Alfreð Gíslason Alþýðubandalag
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Ólafur Thors Sjálfstæðisflokkur
2. Emil Jónsson Alþýðuflokkur
3. Matthías Á. Mathiesen Sjálfstæðisflokkur
4. Jón Skaftason Framsóknarflokkur
5. Finnbogi R. Valdimarsson Alþýðubandalag
Jöfnunarþingmenn
6. Guðmundur Í. Guðmundsson Alþýðuflokkur
7. Geir Gunnarsson Alþýðubandalag
Vesturlandskjördæmi
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Ásgeir Bjarnason Framsóknarflokkur
2. Sigurður Ágústsson Sjálfstæðisflokkur
3. Halldór E. Sigurðsson Framsóknarflokkur
4. Jón Árnason Sjálfstæðisflokkur
5. Benedikt Gröndal Alþýðuflokkur
Vestfjarðakjördæmi
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Gísli Jónsson Sjálfstæðisflokkur
2. Hermann Jónasson Framsóknarflokkur
3. Kjartan J. Jóhannsson Sjálfstæðisflokkur
4. Sigurvin Einarsson Framsóknarflokkur
5. Birgir Finnsson Alþýðuflokkur
Jöfnunarþingmaður
6. Hannibal Valdimarsson Alþýðubandalag
Norðurlandskjördæmi vestra
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Skúli Guðmundsson Framsóknarflokkur
2. Gunnar Gíslason Sjálfstæðisflokkur
3. Ólafur Jóhannesson Framsóknarflokkur
4. Einar Ingimundarson Sjálfstæðisflokkur
5. Björn Pálsson Framsóknarflokkur
Jöfnunarþingmenn
6. Jón Þorsteinsson Alþýðuflokkur
7. Gunnar Jóhannsson Alþýðubandalag
Norðurlandskjördæmi eystra
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Karl Kristjánsson Framsóknarflokkur
2. Jónas G. Rafnar Sjálfstæðisflokkur
3. Gísli Guðmundsson Framsóknarflokkur
4. Garðar Halldórsson Framsóknarflokkur
5. Björn Jónsson Alþýðubandalag
6. Magnús Jónsson Sjálfstæðisflokkur
Jöfnunarþingmenn
7. Friðjón Skarphéðinsson Alþýðuflokkur
8. Bjartmar Guðmundsson Sjálfstæðisflokkur
Austurlandskjördæmi
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Eysteinn Jónsson Framsóknarflokkur
2. Halldór Ásgrímsson Framsóknarflokkur
3. Jónas Pétursson Sjálfstæðisflokkur
4. Lúðvík Jósepsson Alþýðubandalag
5. Páll Þorsteinsson Framsóknarflokkur
Suðurlandskjördæmi
Kjördæmakjörnir þingmenn
1. Ingólfur Jónsson Sjálfstæðisflokkur
2. Ágúst Þorvaldsson Framsóknarflokkur
3. Guðlaugur Gíslason Sjálfstæðisflokkur
4. Björn Fr. Björnsson Framsóknarflokkur
5. Sigurður Óli Ólafsson Sjálfstæðisflokkur
6. Karl Guðjónsson Alþýðubandalag