11.11.2022

Aðalmaður og varamenn taka sæti

Mánudaginn 14. nóvember tekur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkur þá varaþingmaður hennar Elín Anna Gísladóttir af þingi. Sama dag tekur Eydís Ásbjörnsdóttir sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Loga Einarsson, Arnar Þór Jónsson tekur sæti fyrir Bryndísi Haraldsdóttur, Daníel E. Arnarsson fyrir Svandísi Svavarsdóttur, Högni Elfar Gylfason fyrir Bergþór Ólason og Björgvin Jóhannesson fyrir Vilhjálm Árnason.