7.2.2022

Aðalmaður og varaþingmenn taka sæti

Mánudaginn 7. febrúar tekur Steinunn Þóra Árnadóttir sæti á ný á Alþingi og víkur þá varaþingmaður hennar, Eva Dögg Davíðsdóttir, af þingi. Þá tekur Kári Gautason sæti sem varaþingmaður fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Thomas Möller tekur sæti fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Halldór Auðar Svansson tekur sæti sem varaþingmaður fyrir Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur og Kjartan Magnússon fyrir Diljá Mist Einarsdóttur.