14.10.2022

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Mánudaginn 17. október taka Jóhann Friðrik Friðriksson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sæti á ný á Alþingi og víkja þá varaþingmenn þeirra, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Eva Sjöfn Helgadóttir og Anna Kolbrún Árnadóttir af þingi. Þá tekur Jón Steindór Valdimarsson sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir tekur sæti fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur.