11.2.2019

Alþingismenn hitta kjósendur á kjördæmadögum

Kjördæmadagar eru 11.-14. febrúar og eru því engir þingfundir á Alþingi þessa vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Næsti þingfundur verður haldinn mánudaginn 18. febrúar samkvæmt starfsáætlun Alþingis.