10.10.2005

Varamenn taka sæti á Alþingi

Í upphafi þingfundar 10. október tóku Brynja Magnúsdóttir, Grétar Mar Jónsson og Þórarinn E. Sveinsson sæti á Alþingi sem varamenn Margrétar Frímannsdóttur, Magnúsar Þórs Hafsteinssonar og Birkis J. Jónssonar. Jafnframt tóku þann 1. október Hlynur Hallsson og Sigurrós Þorgrímsdóttir sæti á Alþingi sem varamenn Þuríðar Backman og Gunnars Birgissonar. Sigurrós Þorgrímsdóttir er varamaður Gunnars Birgissonar allt 132. löggjafarþing.