15.5.2008

Aðstoðarmenn þingmanna

Huginn Freyr Þorsteinsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóns Bjarnasonar. Hann er jafnframt aðstoðarmaður Þuríðar Backman. Ráðning aðstoðarmanna þingmanna er samkvæmt reglum um aðstoðarmenn formanna stjórnmálaflokka og alþingismanna úr Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæmum.