5. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 11. október 2021 kl. 11:55


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 11:55
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 11:55
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 11:55
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 11:55
Inga Sæland (IngS), kl. 11:55
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 11:55
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 11:55
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 11:55
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 11:55
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 11:55

Vilhjálmur Árnason vék af fundi kl. 12:45.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:55
Fundargerðir 3. og 4. fundar voru samþykktar.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 11:55
Nefndin fjallaði um verkefni nefndarinnar og málsmeðferð.

3) Birting gagna Kl. 12:55
Nefndin samþykkti í samræmi við verklagsreglur að birta gögn opinberlega standi lög eða sérstök þagnarskylda því ekki í vegi. Gögnin verði birt þegar verklagsreglur nefndarinnar hafa verið staðfestar af forseta Alþingis.

4) Störf nefndarinnar Kl. 13:05
Nefndin ræddi störf nefndarinnar og fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:10