12. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 21. október 2021 kl. 12:00


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 12:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 12:00
Diljá Mist Einarsdóttir (DiljE), kl. 12:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 12:00
Inga Sæland (IngS), kl. 12:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 12:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 12:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 12:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 12:00
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 12:00

Diljá Mist Einarsdóttir og Svandís Svavarsdóttir véku af fundi kl. 13:40.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Gestir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Samtöl við gesti fundarins voru hljóðrituð og tekin upp í mynd. Hljóðritunin verður skrifuð upp í vinnuskjal til að tryggja aðgang þingmanna að öllum gögnum málsins svo þeir geti, hver fyrir sig, tekið ákvörðun þegar Alþingi fjallar um gildi kosninganna.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:10
Fundargerðir 10. og 11. fundar voru samþykktar.

2) Störf nefndarinnar Kl. 12:00
Nefndin ræddi fyrirkomulag fundarins.

Kl. 12:10
Nefndin ræddi verkefni nefndarinnar og málsmeðferð sem og fyrirkomulag næstu funda.

3) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 13:05
Nefndin fékk á sinn fund Katrínu Pálsdóttur aðalmann í yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi.

Nefndin fékk einnig á sinn fund Braga R. Axelsson aðalmann í yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:45