19. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 2. nóvember 2021 kl. 10:10


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:10
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:10
Inga Sæland (IngS), kl. 10:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:10
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:10
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:10

Vilhjálmur Árnason og Líneik Anna Sævarsdóttir viku af fundi kl. 12:05.

Hlé var gert á fundi kl. 12:25-13:05. Eftir hlé voru allir nefndarmenn mættir en Hanna Katrín Friðriksson mætti kl. 13:20.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:10
Fundargerð 18. fundar var samþykkt.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:10
Nefndin ræddi drög að greinargerð nefndarinnar.

Hlé var gert á fundi kl. 12:35-13:05.

Nefndin fjallaði um birtingu gagna í samræmi við 2. mgr. 5. gr. verklagsreglna nefndarinnar.

Nefndin ræddi beiðnir kærenda um aðgang að gögnum sem eru að jafnaði ekki birt í samræmi við lög eða sérstaka þagnarskyldu. Nefndin fól skrifstofu Alþingis að svara beiðnum kærenda.

Nefndin hélt áfram að ræða drög að greinargerð nefndarinnar.

Nefndin ræddi verkefni og málsmeðferð nefndarinnar.

3) Störf nefndarinnar Kl. 14:40
Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00