18. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 1. nóvember 2021 kl. 10:05


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:05
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:25
Inga Sæland (IngS), kl. 10:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:05
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:05
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:05

Diljá Mist Einarsdóttir víkur af fundi kl. 14:30.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Samtöl við gesti fundarins vegna Norðvesturkjördæmis voru hljóðrituð og tekin upp í mynd. Hljóðritunin verður skrifuð upp í vinnuskjal til að tryggja aðgang þingmanna að öllum gögnum málsins svo þeir geti, hver fyrir sig, tekið ákvörðun þegar Alþingi fjallar um gildi kosninganna.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 12:10
Fundargerð 17. fundar var samþykkt.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:05
Nefndin fékk á sinn fund Finn Þór Vilhjálmsson saksóknara til að veita nefndinni áframhaldandi ráðgjöf um mögulegar leiðir til að leiða í ljós staðreyndir málsins.

Nefndin ræddi verkefni nefndarinnar og málsmeðferð.

Hlé var gert á fundi kl. 12:10-13:00.

Nefndin fékk einnig á sinn fund Gunni Hjálmsdóttur og Huldu Gunnarsdóttur starfsmenn í talningarteymi í Norðvesturkjördæmi. Gestir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

Nefndin ræddi málið.

Þá fékk nefndin á sinn fund Trausta Fannar Valsson forseta lagadeildar Háskóla Íslands til að veita nefndinni ráðgjöf um málsmeðferð nefndarinnar.

3) Störf nefndarinnar Kl. 16:30
Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:45