26. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Lögreglustöðin í Borgarnesi, Bjarnarbraut 2, fimmtudaginn 11. nóvember 2021 kl. 09:25


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 09:25
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:25
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:25
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:25
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:25
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:25
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:25

Diljá Mist Einarsdóttir, Inga Sæland og Þórunn Sveinbjarnardóttir boðuðu forföll.

Svandís Svavarsdóttir vék af fundi kl. 14:55.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:25
Dagskrárlið frestað.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 09:25
Nefndin kom saman í húsakynnum lögreglustjórans í Borgarnesi að Bjarnarbraut 2 til að fara yfir flokkun kjörgagna í Norðvesturkjördæmi.

Hlé var gert á fundi kl. 12:21-13:15.

Yfirferð yfir flokkun kjörgagna hélt áfram.

Tekin verður saman nánari greinargerð um framkvæmdina.

3) Störf nefndarinnar Kl. 18:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 18:30