9. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 18. október 2021 kl. 10:30


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:30
Diljá Mist Einarsdóttir (DiljE), kl. 10:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:30
Inga Sæland (IngS), kl. 10:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:30
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:30
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:30

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:05
Fundargerðir 7. og 8. fundar voru samþykktar.

2) Verkefni nefndarinnar og málsmeðferð Kl. 10:30
Nefndin hefur móttekið í trúnaði bréf lögreglustjórans á Vesturlandi, dags. 15. október 2021, ásamt fylgiskjölum. Ákvörðun um aðgengi að gögnum frestað.

Nefndin fjallaði um verkefni og málsmeðferð nefndarinnar.

Nefndin fékk á sinn fund Finn Þór Vilhjálmsson saksóknara til að veita nefndinni áframhaldandi ráðgjöf um mögulegar leiðir til að leiða í ljós staðreyndir málsins.

3) Störf nefndarinnar Kl. 12:35
Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

Nefndin samþykkti að Björn Leví Gunnarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir, ásamt starfsfólki skrifstofunnar, fari fyrir hönd nefndarinnar og fylgist með afstemmingu ónotaðra seðla í Norðvesturkjördæmi á lögreglustöðinni í Borgarnesi.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:05